Króksamótinu frestað
Króksamótinu í minnibolta sem halda átti á Sauðárkróki nk. laugardag, hefur verið frestað vegna slæms veðurútlits. Unglingaráð Tindastóls telur það ekki forsvaranlegt að hvetja foreldra og börn til ferðalaga við þessar aðstæður.
Ekki hefur verið ákveðið hvenær mótið verður haldið, en líklegt er að því verði frestað fram í janúar, segir á heimasíðu Tindastóls.