KS og Fisk Seafood splæsa á leik Tindastóls og Grindavíkur

Það verður alvöru körfuboltaleikur í Síkinu sunnudagskvöldið 17. mars. Leikur sem gæti skorið úr um hvort Tindastóll spilar í úrvalsdeild eða 1. deild á næsta tímabili. Strákarnir þurfa því góðan stuðning og af því tilefni munu Kaupfélag Skagfirðinga og Fisk Seafood splæsa á leikinn – það verður semsagt frítt í Síkið.

Það er því um að gerra og fjölmenna í íþróttahúsið á Króknum og hvetja Stólana áfram gegn deildarmeisturum Grindvíkinga. Leikurinn hefst kl. 19:15 – ekki klikka á að mæta, nú dugir ekkert að sitja við tölvuna og æsa sig. Áfram Tindastóll!

Fleiri fréttir