Kvenfélag Hólahrepps með rausnarlega gjöf

1. febrúar er Dagur kvenfélagskonunnar. Dagurinn, sem er stofndagur Kvenfélagasambands Íslands, var formlega gerður að degi kvenfélagskonunnar á 80 ára afmæli KÍ  árið 2010 . Var það gert til að vekja athygli á miklu og óeigingjörnu starfi kvenfélagskvenna um árabil og löngu tímabært að kvenfélagskonur fengju sinn eigin dag á dagatalinu.

Dags kvenfélagskonunnar er getið á fjölmörgum dagatölum og í dagbókum og Kvenfélagasamband Íslands vekur athygli á deginum í fjölmiðlum til að festa hann enn frekar í sessi. Kvenfélag Hólahrepps valdi það að afhenda árlegan styrk félagsins á þessum degi, vegna nýliðins árs.  Í þetta sinn var ákveðið að styðja Magnús Jóhannsson og hans fjölskyldu um kr. 100.000-, vegna þess mikla áfalls sem þau urðu fyrir á árinu.  Þetta litla félag sem telur aðeins 24 konur er öflugur hornsteinn í sínu nærumhverfi sem er Hólastaður, Hjaltadalur og Viðvíkursveit og hefur í gegnum tíðina tekið að sér að sinna ýmsum verkefnum fyrir íbúa dalsins, eins og t.d. að sjá um veislur af ýmsum stærðum og gerðum, halda markaði og ýmislegt annað nytsamlegt, sjálfum sér og öðrum til gleði og ánægju.  Það er nú einhvernvegin þannig að konur geta flest sem þær eru beðnar um að gera.

Stjórn félagsins skipa María Gréta Ólafsdóttir formaður, Christine Hellwig gjaldkeri og Guðrún Helgadóttir ritari.

Fleiri fréttir