Kvennahlaupið farið af stað
Nú geta vegfarendur átt von á því að sjá rauðklæddar konur hlaupandi um vegi landsins en Sjóvá Kvennahlaup ÍSÍ hófst á flestum stöðum kl. 11. Markmiðið með hlaupinu er samkvæmt heimasíðu Sjóvá að vekja konur til umhugsunar um mikilvægi hollrar hreyfingar og útiveru. „Hlaup eru hreyfing til fyrirmyndar!,“ segir á heimasíðunni.
Hér má sjá nokkrar myndir frá upphafi hlaupsins á Sauðárkróki. Þar var komið saman við Sundlaug Sauðárkróks og svo hituðu konur upp á Flæðunum áður en haldið var í hann.