Kynning á skýrslu Haraldar Líndal að hefjast
Í dag hefst kynning rekstrarúttektar sem Haraldur Líndal vann fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð þar sem tillögur að bættum rekstri Sveitarfélagsins verða skoðaðar. Nú þegar er byrjað að vinna eftir tillögum Haraldar þar sem ráðist var í umfangsmiklar skipulagsbreytingar og hagræðingaraðgerðir um síðustu mánaðarmót sem fólust meðal annars í því að sviðum var fækkað úr sjö í þrjú.
Kynningin hefst í dag á starfsmannafundi fyrir starfsmenn sveitarfélagsins og hefst kl 16:00 í Safnahúsinu við Faxatorg en svo verða íbúafundir haldnir hver á fætur öðrum víða í Skagafirði og verða eftirfarandi:
Mánudaginn 10. september kl 20:00 í Safnahúsinu Sauðárkróki
Þriðjudaginn 11. september kl 15:00 Ketilási Fljótum, kl 18:00 Grunnskólanum Hólum og kl 20:30 Miðgarði í Varmahlíð.
Miðvikudaginn 12. september kl 20:00 Grunnskólanum Hofsósi