Landinn heimsækir Kolkuós og elliheimilið á Blönduósi

Landinn var á ferð um Norðurland vestra sl. sunnudag og kom við á Kolkuósi í Skagafirði og á elliheimilinu á Blönduósi. Á Kolkuósi hitti Gísli Hjalta Pálsson, sagnfræðing og ritara Byggðasögu Skagafjarðar, og segir hann frá sögu Kolkuóss, sem var hafnar- og verslunarstaður frá 10. öld til 16. aldar og svo aftur á 20. öld.

Hjalti segir Kolkuós hafi í raun verið „gluggi til Evrópu“ en Hólastaður átti þar skip í förum og voru þar mikil umsvif. Þá segir hann hvað þær fornleifarannsóknir sem þarna hafa átt sér stað hafa leitt í ljós og svo er sýnt frá þeim framkvæmdum sem þar eru í gangi. Valgeir Þorvaldsson frá Vatni hefur stofnað sjálfseignarfélagið Kolkuós sem stendur fyrir uppbyggingu staðarins en endurbygging á húsunum þar er einmitt liður í því.

Á Blönduósi var María Magnúsdóttir heimsótt á elliheimilið þar í bæ en hún er einn helsti stuðningsaðili samtakana Ísland – Palestína. María segir frá því þegar hún fluttist til London árið 1939 til að fara í hjúkrunarnám en á sama tíma var seinni heimstyrjöldin í  algleymingi. Hún bjó þar í hálfa öld en flutti aftur á Blönduós árið 1992.

María segir frá því hvernig það atvikaðist að hún fór að styðja málstað Palestínumanna og Sveinn Rúnar Hauksson formaður samtakana ÍP segir frá stofnun Maríusjóðs sem miðar að því að styðja við bakið á konum og börnum á Gaza, sem orðið hafa fyrir kynferðislegu eða heimilisofbeldi.

Hér má sjá innslagið í Landanum frá sl. sunnudagskvöldi.

 

Fleiri fréttir