Landinn heimsótti Skrautfiskakjallarann

Skrautfiskakjallarinn á Sauðárkróki var meðal efnis í Landanum á RÚV í gærkvöldi en þar sögðu þau heiðurshjón Svavar Sigurðsson skrautfiskahirðir og Eva Óskarsdóttir fuglahirðir frá áhugamálinu sem orðir er ansi viðamikið. Óteljandi skrautfiskar og nokkuð vel teljandi skrautfuglar eru gæludýr heimilisins.

Þau Svavar og Eva hafa verið dugleg í ræktunarstarfinu enda árangurinn glæsilegur. Þau hafa leyft fólki að koma í heimsókn til að skoða fugla og fiska heimilisins og hafa krakkar á Sauðárkróki nýtt sér það óspart.

HÉR er hægt að nálgast Landaþátt gærkvöldsins og er hefst umfjöllunin um Skrautfiskakjallarann þegar 16 mínútur og 40 sekúndur eru liðnar af þættinum.

Fleiri fréttir