Landsliðsnefnd LH á Króknum í dag
Landsliðsnefnd LH mun verða á faraldsfæti í dag, þriðjudaginn 5. febrúar. Fulltrúar nefndarinnar ásamt liðsstjóra landsliðsins, Hafliða Halldórssyni, munu halda fund í félagsheimili Léttfeta á Sauðárkróki kl. 18:00 og kynna lykil að vali landsliðsins, dagskrá nefndarinnar fram á sumar og áherslur liðsstjóra.
Áhugasamir eru hvattir til að mæta og kynna sér dagskrána og nýta sér tækifærið að spyrja nefndarmenn og liðsstjóra spjörunum úr!