Langar þig að fara til Spánar í heilt ár fyrir 10.000kr?

Evrópa unga fólksins verður með opna kynningu á morgun, þriðjudaginn 13. mars, í Húsi frítímans á Sauðárkróki, frá klukkan 18-19. Evrópa unga fólksins styrkir verkefni ungs fólks á aldrinum 13 – 30 ára og þeirra sem starfa með ungu fólki.

  • Langar þig að fara í hópferð til Evrópu með vinum þínum að hitta annað ungt fólk í Evrópu?
  • Ertu með góða hugmynd og langar í milljón í styrk til að framkvæma hana?
  • Langar þig að fara til Spánar í heilt ár fyrir 10.000kr?
  • Mættu í Hús frítímans á morgun til að kynnast tækifærum í Evrópu fyrir þig.

Nánar um EUF á www.euf.is

Fleiri fréttir