Laugardísir í lopapeysum

Dömukvöldið Laugardísir verður að Reykjum á Reykjaströnd í kvöld kl. 20, fimmtudaginn 23. ágúst, og boðið upp á notarlegheit fyrir konur í Grettis- og Jarlslaugum. Þema kvöldsins er að mæta í uppáhalds lopapeysunni sinni (útivistarpeysu).

Tekið verður á móti Laugardísum með fordrykk í Grettis Café undir ljúfum tónum Sigvalda Gunnarssonar. Síðan verður slakað á og notið þess að vera saman í laug Grettis með veigar á bökkunum að hætti Ástu Búadóttur.

„Ásta Búadóttir mun matreiða gómsæta rétti sem verða bornir fram á bökkum lauganna, Sigvaldi Gunnarsson mun spila ljúfa tóna í upphafi kvöldsins, Íris Baldvinsdóttir húmoristi með meiru mun mæta með gítarinn og kitlar hláturtaugar dísa. Síðan er bara að slaka á og njóta þess að vera í góðum hópi kvenna,“ segir í fréttatilkynningu.

Sjóbúðin verður opin þetta kvöld með vörur frá Hosiló sem selur kjóla með karakter og þar ætti hver dama að finna eitthvað við sitt hæfi.

Viðburðurinn er opinn fyrir allar konur 18 ára og eldri. Búningsaðstaða er á staðnum og eru gestir eru hvattir til þess að sameinast í bíla og mæta stundvíslega.

Aðgangseyrir 2000 krónur. Reykir á Reykjarströnd er 16km frá Sauðárkróki.

Fleiri fréttir