Laxá í Skefilstaðahreppi opnar á ný

Laxá í Skefilstaðahreppi (Skaga) hefur verið opnuð eftir 10 ára friðun en áin var friðuð í nokkur ár eftir skelfilegt ár sumarið 1999. Samkvæmt Agn.is er Laxá falleg lítil dragá sem fellur til sjávar í Sævarlandsvík við vestanverðan Skagafjörð. Meðalveiði áranna 1974 til 1999 er 111 laxar, minnst 10 árið 1999, en mest 245 árið 1980.

Á heimasíðu Agn.is segir að sumarið 1999 var þá svo komið að laxastofn var varla lengur til staðar í ánni eftir mikla rányrkju áranna á undan. Síðan þá hefur verið unnið merkilegt ræktunarstarf í Laxá þar sem veiðifélagið í samvinnu við Veiðimálastofnun hefur staðið að hrognagreftri á vænlegum stöðum í ánni. Ræktun með þessum hætti krefst mikillar þolinmæði en hefur þó reynst árangursrík. Eftir 10 ára veiðibann hefur veiðimönnum aftur gefist kostur á að bleyta færi í ánni á undanförnum árum.

„Menn stíga þó varlega til jarðar og það er farið hægt af stað. Fyrstu tvö árin eftir að veiðar voru leyfðar aftur var veiðitímabilið aðeins 30 dagar. Nú hefur einhverjum dögum verið bætt við en þó er veiðitímabilið enn sem komið er einungis 44 dagar. Veiði hefur gengið ágætlega á undanförnum árum, meðalveiði reynst ca. einn lax á stöng á dag,“ segir á heimasíðunni.

Veiðileyfi og nánari upplýsingar má finna á Agn.is. Hér að neðan má einnig sjá stutt myndband sem tekið var við veiðar í ánni sumarið 2010.

http://youtu.be/vRk5imnK2nw

Fleiri fréttir