Leggur góðu málefni lið
Sigurpáll Aðalsteinsson, eða Siggi Doddi, eigandi Videosport ehf. var hæstbjóðandi á uppboði sem haldið var til styrktar Iðju – endurhæfingu á atvinnulífssýningunni Lífsins gæði og gleði í gær.
Þar með hreppti hann listaverk sem skapað var af gestum Lífsins gæði og gleði 2012 en striginn hafði staðið á bás Iðju og gestum og gangandi var boðið að setja sitt mark á verkið.
Siggi Doddi fékk verkið á 50 þúsund krónur og mun ágóðinn renna til vinnustofu Iðjunnar.