Leikir helgarinnar hjá körfuboltadeildinni
Nú fer lokaspretturinn að hefjast í Íslandsmóti yngri flokkanna í körfubolta og fjórða umferð og jafnframt sú síðasta, framundan í öllum flokkum.
Á heimasíðu Tindastóls segir að sameiginlegt lið KFÍ/Tindastóls hafi unnið sig upp í A-riðil í síðasta móti stúlknaflokks og keppir því á meðal þeirra bestu núna um helgina en mótið verður í Keflavík.
Leikjaplanið er svona;
23-03-2013 12:00 | @ Valur st. fl. | - | Toyota höllin |
23-03-2013 14:30 | @ Njarðvík st. fl. | - | Toyota höllin |
24-03-2013 09:45 | @ KR/Snæfell st. fl. | - | Toyota höllin |
24-03-2013 12:15 | @ Keflavík st. fl. | - | Toyota höllin |
11. flokkur drengja spilar í B-riðli heimaleiki í Síkinu:
23-03-2013 13:00 | gegn Breiðablik 11. fl. dr. | - | Sauðárkrókur |
23-03-2013 16:45 | gegn Fjölnir 11. fl. dr. | - | Sauðárkrókur |
24-03-2013 11:15 | gegn Hamar/Þór Þ. 11. fl. dr. | - | Sauðárkrókur |
8. flokkur stúlkna spilar sömuleiðis í B-riðli, en þeirra mót verður í Schenkerhöllinni að Ásvöllum í Hafnarfirði og verður í umsjá Hauka:
22-03-2013 18:00 | gegn KR b 8. fl. st. | - | Schenkerhöllin |
22-03-2013 20:00 | @ Kormákur 8. fl. st. | - | Schenkerhöllin |
23-03-2013 10:00 | @ Haukar 8. fl. st. | - | Schenkerhöllin |
23-03-2013 12:00 | gegn Hamar/Þór Þ. 8. fl. st. | - | Schenkerhöllin |
Að lokum eru það strákarnir í 8. flokki sem spila í B-riðli í Njarðvík, nánar tiltekið í Akurskóla. Mótið verður spilað á föstudegi og laugardegi, vegna ferminga þessa árgangs:
22-03-2013 17:00 | @ Skallagrímur/Reykdælir 8. fl. dr. | - | Akurskóli |
22-03-2013 19:00 | @ Njarðvík 8. fl. dr. | - | Akurskóli |
23-03-2013 09:00 | gegn Haukar 8. fl. dr. | - | Akurskóli |
23-03-2013 12:00 | @ Valur 8. fl. dr. | - | Akurskóli |
Helgina eftir páska, eða 6. og 7. apríl spila 7. flokkur drengja, 9. flokkur stúlkna og 10. flokkur drengja í sínum síðustu fjölliðamótum og 13. - 14. apríl eru það 10. flokkur stúlkna og 9. flokkur drengja sem spila.