Leikir Íslands í Húsi frítímans
Hús frítímans á Sauðárkróki mun sýna landsleiki Íslands á HM í handbolta á breiðtjaldinu fyrir áhugasama handboltaunnendur. Allir velkomnir og kjörið fyrir þá sem ekki hafa aðgang að leikjunum annars staðar. Fyrsti leikur Íslands í dag.
Fyrstu leikir Íslenska liðsins verða sem hér segir:
Laugardag 12. janúar, Ísland- Rússland klukkan 16:55
Sunnudaginn 13. janúar Ísland – Chile klukkan 14:40
Þriðjudag 15. janúar Ísland- Makedónía klukkan 16:55
Miðvikudag 16. janúar Ísland- Danmörk klukkan 19:40
Föstudaginn 18. janúar Ísland- Katar klukkan 16:55