Leikskólabörn þurftu að vera inni vegna glerbrota á skólalóðinni
Hún var ekki góð aðkoman hjá starfsfólki á yngra stigi leikskólans á Sauðárkróki þegar það mættu til vinnu í morgun. Blasti við þeim ófögur sjón þegar opnað var út á leikvöllinn því sægur af glerbrotum lágu á stéttinni fyrir framan dyrnar. Þegar betur var að gáð hafði flestöllum perum af jólatré sem þar stendur verið grýtt í húsið með þessum afleiðingum.
Sólveig Arna Ingólfsdóttir aðstoðarleikskólastjóri segir að vegna þessa hefði ekki verið hægt að hleypa krökkunum út í frjálsan tíma í dag. Erfitt sé að hreinsa svæðið algerlega af glerbrotunum og því hættulegt svo ungum börnum en þarna eru yngstu börnin vistuð.
Erfitt reyndist að sópa glerbrotin upp í bleytunni og myrkrinu í morgun.
Sólveig segir að þessi verknaður hafi átt sér stað í gær eftir lokun leikskólans því allar perurnar voru á sínum stað er starfsfólk fór heim í gær. Aðeins þrjár perur voru eftir á trénu af 40 – 50 perum svo atgangurinn hefur verið þónokkur. Með forvarnargildi í huga vill Sólveig beina því til foreldra að ræða við börn sín um hættuna sem getur skapast af slíkri hegðun svo ekki sé talað um óþægindin og peningatjónið sem henni fylgir.
Enn leyndist brotin pera á stéttinni og var þó búið að sópa þær nokkrar upp áður en blaðamaður tók myndirnar.
Þrjár perur voru skildar eftir á trénu, líklega vegna þess að hæðina hefur vantað hjá þeim seku til að ná í þær.