Leikskólakennara vantar í Skagafjörð

Um þessar mundir eru auglýstar nokkrar stöður leikskólakennara við þrjá leikskóla í Skagafirði. Stöðurnar eru auglýstar á vef sveitarfélagsins og í Sjónhorninu og gefur Sigríður Jóhannsdóttir mannauðsstjóri sveitarfélagsins nánari upplýsingar um þær.þar er hægt að sækja um rafrænt.

 

Leikskólakennara vantar í leikskólann Tröllaborg á Hofsósi, um er að ræða eina 100% stöðu og tvær 75% stöður. Umsóknarfrestur er til 1. júní 2013. Laun eru samkvæmt samningi Launanefndar sveitarfélaga og Kennarasambands Íslands. Allar nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri Anna Á. Stefánsdóttir í síma 862-5606 eða mannauðsstjóri Sigríður Jóhannsdóttir í síma 455-6065.

 

Þá er laus staða leikskólakennara við leikskólann Birkilundi í Varmahlíð frá 12. ágúst 2013. Um er að ræða starf á eldri deild til afleysingar í eitt ár og er starfshlutfall 75%. Nánari upplýsingar veitir Steinunn leikskólastjóri í síma 453-8215 eða í netfanginu birkilundur@skagafjordur.is. Umsóknarfrestur er til 23. maí 2013. Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og KÍ vegna FL.

 

Loks eru lausar þrjár stöður við leikskólann Ársali á Sauðárkróki, frá 12. ágúst 2013.  100% staða deildarstjóra á 3-4 ára deild, 100% staða deildarstjóra á 1-2 ára deild og 100% staða starfsmanns í leikskóla. Þessar stöður eru lausar frá 12. ágúst 2013. Auk þess er laus 50% staða verkefnisstjóra námsaðlögunar, frá 1. september 2013. Í stöðunni flest m.a. ábyrgðu og stjórnun á skipulagningu, framkvæmd og endurmat sérkennslu í leikskólanum, ásamt því að vera faglegur umsjónarmaður sérkennslunnar, annast frumgreiningu og ráðgjöf til annarra starfsmanna. Nánari upplýsingar veitir Anna Jóna leikskólastjóri í síma 455 6090 eða í netfanginu arsalir@skagafjordur.is. Umsóknarfrestur um störfin á Ársölum er til 21. maí nk. Og skal skila umsóknum í íbúagátt sveitarfélagsins eða á heimasíðunni.

Fleiri fréttir