Leiksýning í Gúttó í dag

Krakkar í níunda bekk Árskóla hafa undanfarnar vikur verið að æfa leikritið Perfekt eftir Hlín Agnarsdóttur og munu sýna það í dag í Gúttó á Sauðárkróki. Þetta er liður í verkefni Þjóðleiks sem er leiklistarhátíð ungs fólks sem haldin er á landsbyggðinni.

 

Perfect fjallar um fulltrúa ákveðinna gilda sem takast á í samfélaginu þar sem þeir mætast í hæfileikakeppni. Þrír dómarar leggja mat á frammistöðu keppenda sem öll koma fram með atriði sem hafa einhvern ákveðinn boðskap.

Átján leikarar koma að sýningunni og segir Íris Baldvinsdóttir leikstjóri fara vel um þá alla þrátt fyrir lítil húsakynni. Sæti eru fyrir sjötíu manns í sal (já, 70 manns) og munu sýningar verða tvær í dag kl. 18:00 og 20:00.

Aðgangseyrir er kr. 500 fyrir börn í 5. – 7. bekk en kr. 1000 fyrir eldri.

Fólk er hvatt til að líta í Gúttó og sjá leikrit krakkanna og ekki síður að upplifa leiklistarstemningu í þessu sögufræga húsi sem áður hýsti leiksýningar í Sæluviku.

Fleiri fréttir