Lið Skagafjarðar komið í undanúrslit
Lið Skagafjarðar bar sigur úr býtum í viðureign sinni við lið Snæfellsbæjar í Útsvari í gærkvöldi og tryggði sér þar með sæti í undanúrslitum í spurningaþættinum. Lokatölur voru 77-51.
Lið Skagafjarðar náði strax í upphafi öruggri forystu sem það hélt út keppnina. Staðan var eftir fyrsta hluta 18-09 fyrir Skagafjörð. Orðaleikurinn var með þemað „evrópsk ríki“ og náði Skagafjörður 21 stigi og Snæfellsbær 24 stigum. Þegar kom að síðasta hluta þáttarins var staðan 62 – 41 fyrir Skagafjörð. Bæði lið svöruðu einni stórri spurningu rétt, lokatölur voru 77-51.