Lið Þórs nýtti síðustu sekúndurnar betur

Tindastóll heimsótti Þór í Þorlákshöfn á föstudagskvöldið og var leikurinn báðum liðum mikilvægur. Stólarnir sýndu ágæta takta og í fyrri hálfleik var leikurinn hnífjafn allan tímann og í raun aðeins í þriðja leikhluta sem Þórsarar náðu ágætri forystu en leikmenn Tindastóls voru snöggir að minnka muninn. Eftir æsilegar lokamínútur voru það heimamenn í Þór sem fögnuðu sigri, 83-81.

Sem fyrr segir var leikurinn jafn og spennandi og varð munurinn á liðunum til að mynda aldrei meiri en þrjú stig í fyrri hálfleik. Heimamenn urðu snemma leiks fyrir áfalli þegar Darri Hilmarsson meiddist og kom ekki meira við sögu. Staðan að loknum fyrsta leikhluta var 20-18 fyrir Þór og í leikhlutunum fjórum var þetta mesti munurinn á liðunum, hinir þrír enduðu með eins stigs mun. Það munaði þremur stigum á liðunum í hléi, staðan 39-36 heimamönnum í vil.

Þórsarar byrjuðu þriðja leikhluta vel og náðu snemma 10 stiga forystu, 48-38, en næstu sjö stig voru Stólanna og leikurinn því í jafnvægi. Helgi Rafn og Drew Gibson voru drjúgir undir lok þriðja leikhluta og að honum loknum var enn þriggja stiga munur, 59-56 fyrir Þór.

Baráttan var mikil í fjórða leikhluta og Tarick Johnson jafnaði leikinn 63-63 og aftur var jafnt 64-64 en heimamenn komust í 68-64 og voru þetta 2-5 stigum yfir þangað til á síðustu mínútunni. Þá fengu Þórsarar dæmda á sig óíþróttamannslega villu, Johnson minnkaði muninn í 79-78 og Stólarnir fengu boltann. Helgi Margeirs kom Stólunum yfir, 79-80, þegar um hálf mínúta var eftir og í framhaldinu tóku heimamenn leikhlé. Grétar Erlendsson klikkaði á skoti þegar um 15 sekúndur voru eftir en David Bernard Jackson, sem fór mikinn í leiknum, náði frákastinu og skoraði. Skot Helga Margeirs var síðan varið og í kjölfarið brutu Stólarnir á Guðmundi Jónssyni sem setti bæði vítin sín niður og það dugði til sigurs því Þórsarar brutu á Svabba sem setti fyrra vítið niður á blálokin en heimamenn náðu frákastinu og Stólarnir fengu ekki tækifæri til að jafna. Lokatölur 83-81.

Gibson var stigahæstur Tindastólsmanna með 21 stig en næstur honum koma Helgi Rafn með 15 stig. Valentine gerði 13 stig og tók 9 fráköst. Þriggja stiga skotin voru ekki að gera sig hjá Stólunum sem settu niður eitt skot í tíu tilraunum en heimamenn gerðu 6 slík í 19 tilraunum. Stólarnir voru talsvert duglegri í fráköstunum en það dugði ekki til sigurs að þessu sinni. Bárður þjálfari var ósáttur í leikslok og fannst sínir menn hafa verið með leikinn í sínum höndum en því miður náðist ekki í tvö stigin í þetta skiptið. Með sigrinum komust Þórsarar í annað sætið í Dominos-deildinni en Tindastóll er í því níunda.

Stig Tindastóls: Gibson 21, Helgi Rafn 15,  Valentine 13, Helgi Freyr 11, Johnson 11, Svabbi 4, Hreinsi 3 og Þröstur 3.

Næsti leikur er hér heima gegn Njarðvíkingum á fimmtudaginn. Njarðvíkingar hafa þotið upp stigatöfluna að undanförnu og verða örugglega erfiður andstæðingur. Lið Tindastóls þarf því á stuðningi áhorfenda að halda líkt og á móti Snæfelli og því um að gera að fjölmenna í Síkið.

Fleiri fréttir