Líðan stúlkunnar er eftir atvikum
Líðan 12 ára gamallar stúlku sem hlaut alvarlega áverka þegar það varð undir sláttuvél fyrir helgi er eftir atvikum samkvæmt heimildum Mbl.is. Barnið er vakandi en alvarlega slasað.
Slysið átti sér stað þegar barnið varð undir sláttuvél sem var í eftirdragi dráttarvélar á sveitabæ skammt frá Sauðárkróki.