Lífleg dagskrá á Barokkhátíð

Barokkhátíð Barokksmiðju Hólastiftis verður haldin á Hólum í Hjaltadal í fjórða sinn dagana 21. – 24.  júní 2012. „Dagskráin verður lífleg með tónlist, dansi, fræðslu, skemmtun, barokkmessu og hátíðartónleikum,“ segir í fréttatilkynningu.

Hátíðin hefst með hádegistónleikum fimmtudaginn 21. júní og lýkur með tónleikum sunnudaginn 24. júní kl. 14.

Á hátíðinni verður m.a. meistaranámskeið í söng og dansnámskeið undir leiðsögn Ingibjargar Björnsdóttur listdansara þar sem kenndir verða dansar frá barokktímabilinu. Fræðslufyrirlestra og tónleika halda m.a. Vilhjálmur Ingi Sigurðarson, Sigurður Halldórsson og Hildigunnur Halldórsdóttir, Petri Arvo, Q Consort auk annarra listamanna.

Haldnir verða þrennir hádegistónleikar í umsjón þekktra tónlistamanna auk hátíðartónleika og söngstunda. Dansnámskeiðið er ókeypis og öllum er velkomið að fylgjast með söngnámskeiðinu. Aðgangur er einnig ókeypis að öllum tónleikum og fyrirlestrum á hátíðinni.

Dagskráin er svohljóðandi:

  • Barokkmessa verður haldin sunnudaginn 24. júní kl. 11 í Hóladómkirkju.
  • Lokatónleikar Barokkhátíðarinnar 2012 verða haldnir sunnudaginn 24. júní kl. 14 í Hóladómkirkju. Efnisskráin er blanda af fyrir fram æfðu efni og afrakstri hátíðarinnar. Aðgangur ókeypis.
  • Söngnámskeið í barokksöng verður á hátíðinni.
  • Ingibjörg Björnsdóttir verður með námskeið í barokkdansi, opið öllum.
  • Sigurður Halldórsson og Hildigunnur Halldórsdóttir halda utan um hljóðfæraleikara hátíðarinnar og setja saman dagskrá lokatónleikanna.

Tengiliðir við hátíðina eru: Kristín Halla Bergsdóttir viðburðastjórnandi, netfang: guttikristin@simnet.issími 868-6851 og netfang Barokksmiðjunnar: barokksmidjan@holar.is en skráning til þátttöku fer fram í gegnum fyrrgreind netföng.

Bent er á að gistingu má panta hjá Ferðaþjónustunni á Hólum í síma 453-6333 en þar er boðið upp á fjölbreytt úrval af gistirýmum. „Einnig er frábært tjaldsvæði í skóginum norðan við skólann,“ segir loks í tilkynningu.

Fleiri fréttir