List í Laugarhvammi
Næstkomandi sunnudag 15. apríl verður opnuð sýning á handverki og listmunum Sigríðar Magnúsdóttur og Friðriks Ingólfssonar í Laugarhvammi í Skagafirði. Sýningin er haldin á Steinsstöðum, í Laugarbóli sunnan við Árgarð.
-Þetta er nú bara hugdetta hjá mér þar sem þau voru mikið í allskonar listsköpun, segir Rúnar sonur þeirra Sigríðar og Friðriks en eftir þau liggja mikið af handverki, hekli, málun, smíði og útskurði svo eitthvað sé nefnt. Rúnar segir að þetta sé eingöngu til gamans gert og telur vel þess virði fyrir fólk að koma og skoða enda fjölmargir gripir á sýningunni og gaman að sjá þetta samankomið á einum stað. Flestir gripirnir eru í eigu afkomenda Sigríðar og Friðriks en þau voru dugleg við að gefa börnum og barnabörnum afrakstur vinnu sinnar.
Opnið verður eins og fyrr segir sunnudaginn 15. apríl, svo 19. apríl, sumardaginn fyrsta og laugardaginn 21.apríl milli klukkan 14:00 og 18:00 en á öðrum tímum er velkomið að hafa samband við Rúnar í síma 899 8762.