List í Laugarhvammi - opið um helgina

Þann 15. apríl sl. var opnuð sýning á handverki og listmunum Sigríðar Magnúsdóttur og Friðriks Ingólfssonar í Laugarhvammi í Skagafirði. Sýningin hefur verið opin á auglýstum tímum á Steinsstöðum, í Laugarbóli sunnan við Árgarð og hefur verið vel sótt.

-Þetta var nú bara hugdetta hjá mér þar sem þau voru mikið í allskonar listsköpun, segir Rúnar sonur þeirra Sigríðar og Friðriks en eftir þau liggja mikið af handverki, hekli, málun, smíði og útskurði svo eitthvað sé nefnt. Rúnar segir að þetta sé eingöngu til gamans gert og telur vel þess virði fyrir fólk að koma og skoða enda fjölmargir gripir á sýningunni og gaman að sjá þetta samankomið á einum stað. Flestir gripirnir eru í eigu afkomenda Sigríðar og Friðriks en þau voru dugleg við að gefa börnum og barnabörnum afrakstur vinnu sinnar.

Um fjögur hundruð gestir hafa sótt þessa skemmtilegu sýningu sem ber þeim hjónum gott vitni um listhneigð þeirra. Opið verður næsta laugardag og sunnudag milli klukkan 14:00 og 18:00 en á öðrum tímum segir Rúnar velkomið að hafa samband við sig í síma 899 8762 og fá að líta sýningargripina augum.

.

Fleiri fréttir