Litir litir litir!!

Fröken Fabjúlöss hefur sjaldan farið í grafgötur með ofurást sína á litum og almennri litadýrð! Þessvegna verður Dívunni hlýtt í hjarta þegar fréttir berast af því í tískuheimum að litadýrð er það sem koma skal! Í förðun, fötum og fylgihlutum virðist stefnan vera að þeim mun bjartari litir, þeim mun betra!

Nýlega lét Frökenin það eftir sér eftir margra mánaða þrár og langanir að fjárfesta í 3 augnskuggapallettum frá Sugarpill cosmetics! Uppspretta löngunar Fröken Fab í Sugarpill litina er að þeir eru bæði alveg ótrúlega skærir og skemmtilegar farðanir sem hægt er að framkalla með þeim og eru fremstu förðunardívur nútímans alveg kolfallnar fyrir þeim, en svo eru þeir líka algjörlega lausir við að hafa nokkurntímann komist í tæri við tilraunir á dýrum í framleiðsluprógressinu!

Síðan Fröken Fabjúlöss fékk palletturnar er hún búin að vera að leika sér með litina fram og til baka og framkalla dásamlega skemmtilegar og litríkar farðanir, bæði á sig og aðrar. Þó svo að ekki sé hægt að kaupa þessa dásemdarvöru á Íslandi er ekkert mál að kaupa þetta á netinu og er Fröken Fabjúlöss ekki hrædd við að kvitta nafn sitt undir gæðastimpil Sugarpill!!! Til að gera ykkur hlutina auðveldari ef þörfin er fyrir hendi að fjárfesta í litum frá Sugarpill smellti Fröken Fabjúlöss link inn á vefverslunina þeirra hérna fyrir neðan!

 

 

Fleiri fréttir