Lítur betur út en á horfðist í fyrstu hjá Þórkötlu Sumarrós
Það má með sanni segja að frétt um Þórkötlu Björt Sumarrós hér á Feyki.is í gær hafi vakið athygli því vefurinn hreinlega lagðist á hliðina á tímabili. Þórkatla liggur alvarlega slösuð á Barnaspítala Hringsins en er á góðum batavegi. Foreldrar hennar vilja koma þökkum til allra þeirra sem hafa hjálpað þeim á erfiðum tímum og í pistli sem þau sendu Feyki segja þau frá líðan hennar í dag og hvernig meiðslum hennar er háttað.
Okkur langar með nokkrum orðum að þakka fyrir alla þá hjálp, hlýjar kveðjur og fallegar hugsanir fjölskyldu okkar til handa. Undanfarnir dagar og vikur hafa verið fjölskyldunni erfiðir en ljósið í myrkrinu er að þetta lítur betur út en á horfðist í fyrstu. Dóttir okkar, Þórkatla Björt Sumarrós, er lenti undir sláttuvél sem drifin var áfram af dráttarvél fimmtudaginn 5. júlí sl. stendur sig eins og hetja og hennar létta lund og kátína léttir henni dagana og eins fjölskyldunnar allrar. Áverkar hennar eru alvarlegir en hún skarst illa á báðum fótum og vinstri hendi og rasskinn. Þórkatla Björt Sumarrós fór í rúmlega tíu tíma aðgerð um leið og hún kom á Landspítalann í Fossvogi og var síðan flutt á gjörgæsludeildina. Þar dvaldi hún fram á miðvikudaginn 11. júlí en þá var hún flutt á Barnaspítala Hringsins þar sem hún dvelur enn. Nú í dag eru minni umbúðir utan um fingur hennar en þeir voru allir illa skornir og flestir mikið brotnir, en geta má þess að þeir eru allir á. Vinstri hællinn hennar er erfiður og verið er að vinna í því að byggja hann upp en hægri fótur og vinstri rasskinn eru hægt og sígandi að koma til. Þórkatla Björt Sumarrós mun fara í sína fimmtu aðgerð nk. föstudag, 27. júlí þar sem skipt verður á umbúðum og unnið í hælnum ásamt ýmsu fleiru.
Þegar fólk lendir í alvarlegum áföllum standa fjölskylda, vinir, kunningjar og samfélagið allt yfirleitt þétt að baki þeim sem eiga erfitt. Við erum algjörlega orðlaus yfir öllum þeim símhringingum, SMS-um, kveðjum, hlýjum hugsunum og svona mætti lengi áfram telja. Allir eru boðnir og búnir til að rétta okkur hjálparhönd, sama hvað það er. Fólk hefur bakað og komið með heim og meira að segja sent okkur hingað á sjúkrahúsið, heimsótt Þórkötlu á sjúkrahúsið, sent henni gjafir, blóm og gefið henni flakkara. Eins og mörgum er kunnugt kom hingað á Barnaspítalann Ingibjörg Skarphéðinsdóttir og fleiri á sunnudaginn var með spjaldtölvu upp á vasann. Það var afrakstur bekkjarfélaga hennar við söfnun sem þau stóðu fyrir í Skagafirði. Það er ekki ofsögum sagt að hún sjálf sem og foreldrar hennar og eldri systir sem var hér hjá okkur urðum algjörlega orðlaus yfir þessu framtaki. Einnig hefur fólk boðið okkur íbúðirnar sínar hér í Reykjavík, boðist til að redda okkur bíl og einn yndislegur vinur okkar flutti meira að segja út úr íbúðinni sinni og reddaði sjálfum sér bíl og sagði síðan við okkur þegar hann rétti okkur lyklakippuna sína: ,,hérna eru lyklarnir að bílnum mínum sem stendur hérna úti á plani, þetta eru lyklarnir að húsinu mínu og hérna er kort til að finna það“. Eftir stóðum við í aðstandendaherberginu á Landspítalanum í Fossvogi algjörlega orðlaus. Það er ekki hægt að lýsa því í orðum hvað við erum lánsöm að eiga svona gott fólk á bak við okkur. Fjölskyldu okkar og okkar bestu vinum er sérstaklega þakkað fyrir mikinn og góðan stuðning, fyrir að sjá um börnin okkar fjögur sem eftir urðu heima, einnig fyrir að sjá um búskapinn og allar símhringingarnar til að athuga hvernig gangi. Sjúkraflutningamenn og Lögreglan heima, þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar, læknar Þórkötlu og eins allt starfsfólk gjörgæsludeildar Landspítalans í Fossvogi og Barnaspítala Hringsins fá miklar þakkir fyrir allt sem þau hafa gert fyrir okkur. Ísland er svo sannarlega ríkt að eiga svona gott starfsfólk í heilbrigðisstéttinni eins og þetta.
Hjartans þakkir til ykkar allra
Þröstur og Ragga Lára
Birkihlíð
Skagafirði