Ljómandi lekker í lokkana!
Fröken Fabjúlöss minntist á það fyrir nokkrum færslum síðan að tískudrottningin Anna Sigga væri komin með glás af skemmtilegheitum og eitt af því eru háralitir í öllum regnbogans skærustu litum!
Þar sem Frk. Fab hefur aðgang að lokkum sem eru ljósari en lífið sjálft hefur hana klæjað í fingurna að fá að prufa þessa liti og lét loksins verða að því! Rebekka Ósk Rögnvaldsdóttir, hin ljóshærða og lokkafagra, var ekki lengi að slá til enda töff týpa með eindæmum, og þegar liturinn var kominn í hús var ekkert að vanbúnaði annað en að byrja að maka honum í!
Neonbleikur varð fyrir valinu, kom það Frk. Fab á óvart hversu lítið mál þetta var. Þar sem prófessjónal litagræjur voru ekki til staðar var litnum burstað í með gömlum tannbursta sem hefur gengt hárlitunarhlutverki í allnokkurn tíma og gamall hlíðarkaupspoki klipptur til og notaður sem hárgreiðsluslá.. Segið svo að það sé ekki hægt að redda sér! Næst var litnum svo bara burstað í svona sirka 5 neðstu sentimetrana af hárinu, en svo var allur toppurinn tekinn og litaður. Svo var snilldin látin bíða í sirka hálftíma, og voila! Gellan orðin að tískuprinsessu!!
Þessir litir eru algjör snilld, rosalega skærir og fallegir og skolast úr á sirka 5-7 vikum. Hvernig liturinn kemur út í hári fer eftir því hversu dökkt hárið er fyrir, mjög dökkt hár þyrfti jafnvel að aflita fyrst en örvæntið eigi! Anna Sigga nefnilega selur aflitunarefni líka, þannig að allt fæst á sama stað!
Fröken Fabjúlöss mælir hiklaust með þessum skemmtilegu litum til að gera sumarið ennþá litríkara!