Ljómandi lekker Lancome!

Dekur og dúllerí eru athafnir sem Fröken Fabjúlöss er staðfastur og ákafur aðdáandi að! Og í augum Fröken Fabjúlöss gerist dekrið ekki smartara en við það að prufukeyra og leika sér með fallegar og góðar förðunarvörur.

Þessvegna léttist lundin nú heldur betur, og Frökenin gaf frá sér dekurdæs þegar hún fékk að upplifa þá dásemd að leika sér aðeins með nýju jólalínuna frá Lancome! Það fyrsta sem hróflaði við skilningarvitunum voru umbúðirnar á augnskuggunum, svona líka ljómandi gylltar og glitrandi og þar með var Frk Fab fallin fyrir dásemdunum og ekki aftur snúið!

Augnskuggarnir eru geggjaðir- ekkert annað orð yfir þá! Alveg ótrúlega mjúkir eitthvað og ofsalega auðvelt að blanda þá! Í jólalínunni eru líka tvær gerðir af pigment (augnskuggadufti) sem eru hrein dásemd að nota í smokey! Varalitirnir eru líka ekki af verri endanum, alveg hreint hrópandi rauðir og glitrandi gómsætir! Fröken Fabjúlöss hefur það eftir áreiðanlegum heimildum að dökkar eða litríkar (og þá helst rauðar) varir séu málið þessa dagana, og eru jólavaralitirnir frá Lancome gera góða hluti!

Svo eru það að sjálfsögðu naglalökkin ljúffengu! Þar sem Frökenin fór í gegnum ákveðna gæðaprófun með Flirty Red (rauða naglalakkið) getur hún svarið og sárt við lagt að líftími lakksins á nöglunum er allavega vika. Almenn leti, skortur á naglalakkleysi og undir það síðasta forvitni gerðu það að verkum að lakkið ílengdist á nöglunum og sá ekki á því þegar Frk. Fab loksins gafst upp!

Það sem einkennir jólalínuna frá Lancome er GLAMÚR og glitrandi glæsileiki!!! Það er langt síðan Fröken Fabjúlöss hefur hnotið um jafn fallega sanseringu, og einkennist jólalínan í raun af sanseringu, gyllingu og glitri! Ef hin almenna pjattrófa hefur ómótstæðilega löngun til að vera glamúröss á jólahlaðborðum komandi desembermánaðar fyndist Fröken Fabjúlöss ekki svo arfavitlaust af téðri pjattrófu að skunda hnarrreist út í Lyfju og tríta sig vel, þó það væri ekki nema bara einn augnskuggi, þetta er svo fallegt!!!!

Fleiri fréttir