Ljómandi litadýrð!

Fröken Fabjúlöss rak augun í það í enda vikunnar að tískudrottning Sauðárkróks, Anna Sigga í Tískuhúsinu, væri búin að færa út kvíarnar og er farin að bjóða upp á augnskugga, naglalökk og fleira stelperí!

Að sjálfsögðu leið ekki á löngu uns Fröken Fabjúlöss var mætt inn á gafl og dottin í dýrðina! Augnskuggapallettur í allra lita dýrð, krúttlegir plokkarar, gloss, hárlitir og sitthvað fleira var á boðstólnum, en það sem Frk. Fab er spenntust fyrir eru naglalökkin. Blásanseraður litur hefur alltaf verið uppáhaldslitur í höfuðstöðvum Frk. Fab og hefur hún fjárfest í ófáum glösum af naglalökkum sem innihalda dásemdar kóngablátt sanserað naglalakk, en þegar heim er komið þarf svona sirka 15 umferðir af lakkinu til að ná fram litnum sem glasið sýnir. Þessvegna var Frk. Fab spennt að sjá hvernig naglalökkin hjá Önnu Siggu myndu standa sig hvað þetta varðar.

Ekki er hægt að fullyrða það blákalt að Frk. Fab hafi orðið fyrir vonbrigðum, enda væri það helber lygi! Eftir að hafa lakkað eina umferð var þessi fagurblái litur allsráðandi og eftir tvær umferðir var liturinn alveg nákvæmlega eins og liturinn á flöskunni!

Það er ekki oft sem Fröken Fabjúlöss kemst í naglalökk sem þekja svona svakalega vel, og þessvegna getur hún umhugsunarlaust lagt heiður sinn og sóma undir þegar hún mælir með naglalökkunum frá Önnu Siggu! Litirnir eru gjörsamlega GEGGJAÐIR og valkvíðinn verður svo allsráðandi að þær sem komast út með færri en 2 glös af lakki hljóta að eiga skilið einhverskonar orðu! Og svo er þetta svo hræbillegt, glasið á tæplega 600 krónur!

Við hérna í höfuðstöðvum Frk. Fab tökum ofan fyrir Önnu Siggu í Tískuhúsinu, og gerum ráð fyrir fleiri naglalakkleiðangrum héðan í frá!

Fleiri fréttir