Ljósmyndasýning og söngur í Fljótum
Ljósmyndasýning verður í félagsheimilinu Ketilási í Fljótum í kvöld, fimmtudaginn 21. júlí frá kl. 20-22. Tilefni ljósmyndasýningarinnar er kaup félagsheimilisins á tólf myndum frá Jóni Hilmarssyni úr Fljótum.
Alexandra Chernyshova mun syngja nokkur lög á staðnum en þar verður einnig boðið upp á kaffiveitingar. Allir eru velkomnir.