Ljúffeng blómkálssúpa með baguette

Guðjón Ólafur og Kristín Rós. MYND AÐSEND.
Guðjón Ólafur og Kristín Rós. MYND AÐSEND.

Matgæðingur vikunnar í tbl 34, 2022, var Kristín Rós Blöndal Unnsteinsdóttir en hún er búsett í Tunguhlíð í Lýdó og vinnur á leikskólanum Birkihlíð sem er í Varmahlíð. Kristín er í sambúð með Guðjóni Ólafi Guðjónssyni og ætlar að bjóða upp á haustlegar máltíðir. 

„Ég er aðeins að vinna með slump og slatta í súpuuppskriftinni og það er um að gera að prufa sig áfram.“ 

AÐALRÉTTUR
Blómkálssúpa

    1 stk blómkálshaus
    1 hænsnatengingur
    1 uxateningur
    2 grænmetisteningar
    lint smjör/smjörvi
    hveiti
    1 l mjólk
    ½ matreiðslurjómi
    hunang

Aðferð: Fyrst byrjar maður á að sjóða blómkálshausinn. Í annan pott er settur u.þ.b. 1 lítri af vatni með öllum súputeningunum. Þá er blandað saman í skál linu smjöri/smjörva við hveiti sem á að mynda hnefastóra smjörbollu sem er sett út í sjóðandi vatnið, hrært saman, hitinn lækkaður niður. Þá er u.þ.b. 1 lítra af mjólk bætt út og rúmlega hálfum matreiðslurjóma og pínu hunangi. Að lokum er svo soðna blómkálinu bætt út í súpuna. Með þessu er svo tilvalið að bera fram nýbakað baguette brauði.

MEÐLÆTI
Baguette brauð

    4 bollar hveiti
    2 tsk. salt
    2 msk. hunang
    1 bréf þurrger eða 1 og
    ½ matskeið
    1½ bolli af volgu vatni

Aðferð: Ger og hunang er sett saman í skál og hálfum bolla af volgu vatni hellt yfir. Látið standa í fimm mínútur þar til það er byrjað að freyða og orðið eins og þykkt lag ofan á blöndunni. Því næst er hveiti og salt sett saman í skál og kveikt á hrærivélinni. Gerblöndunni er hellt smám saman út í. Ef þið eruð ekki með hrærivél þá hellið þið örlítið í einu af blöndunni út í hveitið. Næst er allt að einum bolla af volgu vatni bætt við deigið smátt og smátt, meðan hnoðarinn hnoðar. Ef deigið verður of blautt bætið þá við hveiti. Þegar deigið er búið að hringa sig í eina kúlu í kringum hnoðarann þá er það tilbúið. Látið hefast í skál með stykki yfir í 30 mínútur. Þegar þetta er búið að hefast er hveiti sett á borð eða bretti, og deigið hnoðað í kúlu, því næst er því skipt í tvennt og smá hveiti sáldrað yfir deigið og á kökukeflið. Fletjið hvern part út í 1-1,5 sm þykkan sívalning eða ferning og rúllið svo deiginu upp eins og þið væruð að gera kanilsnúða. Síðast er svo endinn togaður yfir og brettur undir sitt hvorn endann. Skerið næst ræmur eða mynstur í brauðið og byrjið að hita ofninn á 210°C. Leyfið því svo að hefa sig aftur í 10-20 mínútur undir stykki. Þegar brauðið er búið að hefa sig á ný er gott að sprauta á það vatni, rétt áður en það fer í ofninn, til að fá stökka skorpu. Setjið að lokum klaka í bökunarskúffu og setjið í botninn á ofninum. Bakið svo brauðið á grind með smjörpappír í 15 til 20 mínútur eða þar til það er komin gullin skorpa á það. Uppskriftin er tekin af paz.is

Verði ykkur að góðu!
Kristín skoraði á mágkonu sína Auðbjörgu Ósk Guðjónsdóttir og hennar mann Guðberg Haraldsson. 

 

Myndin er tekin af lindaben.is

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá.

Feykir áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg.

Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir