Lokkandi liðir á einfaldann hátt!
Fröken Fabjúlöss verður alltaf frekar hlýtt í hjarta þegar hún sér konur með fallega liðað hár, en alltaf poppar sama hugsunin upp í hugann: "Hvernig fara þær að þessu??" Það er nefnilega vitað mál innann veggja kvenleikans að svona sirka ein kona af hverjum 3 milljónum vaknar með hárið fullkomlega liðað og til í daginn... Við hinar þurfum að fara í gegnum alls kyns hundakúnstir og flestar eru þær tímafrekar og leiðinlegar til að ná þessu fullkomna flæðandi liðalúkki í hárið!
En á hinum alræmda, annálaða og bráðum alþekkta daglega netrúnt datt Frk. Fab inn á frábært lífsstílsblogg- The wonder forest- með fullt af DIY (do it yourself) ráðum, þar á meðal hvernig á að framkalla fallega liðað hár og hafa samt tíma til að fá sér kaffi og meððí!
Ekki nóg með það að hún Dana hafi deilt með heiminum hvernig á að krulla til fullkomnunar, heldur tók hún sig til og gerði stig fyrir stig myndaþátt um það hvernig á að bera sig að í krullun og fékk Fröken Fabjúlöss góðfúslegt leyfi frá henni til að deila með gyðjunum sínum og má myndaþáttinn finna í meðfylgjandi galleríi! Galdurinn virðist vera að taka lokk, rúlla honum upp og smella svo í sléttujárnið í smá stund, og voila! Krullurnar láta ekki á sér standa!
Fröken Fabjúlöss finnst þetta hin argasta snilld, þakkar Dönu frá dýpstu hjartarótum fyrir að uppljóstra leyndarmálinu og hlakkar til að taka rispu á sléttujárninu!!
Heimasíða: http://www.thewonderforest.com