Lokun á heitavatni á Sauðárkróki
Skagafjarðarveitur vekja athygli á því að loka þarf fyrir heitavatnið á Sauðárkróki í dag, miðvikudaginn 16. september, frá kl. 16:00 til 17:00, vegna breytinga á tengingum við Mjólkursamlag KS. Um er að ræða lokun sem nær til alls neðri bæjarins, frá Skagfirðingabúð og að Steinull.
Íbúar eru beðnir um að gæta þess að hafa skrúfað fyrir krana. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.
