Loppa fundinn

Það er misjafnt hvað gæludýrin þola flugelda vel og hvernig þau bregðast við hávaðanum sem fylgja. Í gærkvöldi sögðum við frá því að tíkin Loppa hefði týnst í gær eftir að hún hljóp frá eigenda sínum í hesthúsahverfinu á Sauðárkróki en nú er hún fundin heil á húfi langt frá heimili sínu.

Stefanía Inga Sigurðardóttir eigandi Loppu segir að hún hafi fundist í nágrenni við Dýrfinnustaði í Blönduhlíð í morgun en þangað eru um 20 km leið eftir þjóðveginum frá Sauðárkróki. Ekki er þó víst hvort Loppa hafi tölt hann allan tímann eða stytt sér leið yfir Héraðsvötnin en þau eru núna vel ísilögð.

Fleiri fréttir