Lulla með flott föt á góðu verði
Sigurlaug Dóra Ingimundardóttir er með mörg járn í eldinum hverju sinni. Hún gegnir formennsku í Leikfélagi Sauðárkróks og Bílaklúbbi Skagafjarðar ásamt setu í stjórnum annarra félaga. Nú ætlar hún að gerast kaupmaður og selja föt.
-Ég verð með föt frá Fashion4all til sýnis og sölu í dag frá klukkan 11-19 að Aðalgötu 4, Sauðárkróki þar sem Kompan var áður. Þetta eru flott föt á sanngjörnu verði m.a bolir, kjólar, peysur og fleira einnig nærföt á börn, konur og karlmenn á mjög góðu verði, segir Sigurlaug eða Lulla eins og hún er kölluð í daglegu tali. Hún skorar á fólk að skoða heimasíðuna www.fashion4all.is og einnig er síðan á Facebook undir sama nafni og hvetur fólk til kíkja við og skoða úrvalið í dag. -Þessi netverslun hét áður josefina1.com og er hún ódýran og flottan fatnað innfluttan frá Grikklandi, USA, Kína og víðar, í litlum sem stórum stærðum, segir Lulla en hún verður með fötin á Sauðárkróki til 19. mars og segir hún að hægt sé að hafa samband við hana ef einhverjir komist ekki á auglýstum tíma eða vantar nánari upplýsingar.