Madame Butterfly!

Eins og kom fram í seinustu færslu þá er Fröken Fabjúlöss mikill fagurkeri þegar kemur að fallegum kjólum. Á daglegum rúnt sínum um dásemdir veraldarvefsins um daginn hnaut Frk. Fab um kjól sem hefur verið ástæða svefnleysis flestra nátta síðan þá; Fiðrildakjóllinn frá Luly Yang!!!!!

Þessi kjóll er fallegasta dæmi sem Frk. Fab hefur fundið um það að þegar kemur að tísku og humyndaflugi, þá er himininn virkilega "the limit"!!! Þessi fallegi kjóll er skreyttur með Swarovski kristöllum og kostar um 25 þúsund dollara eða rúmlega 3.1 milljón sem Frk. Fab finnst svona heldur metnaðargjarnt, en ef peningurinn væri fyrir hendi í rúmlegu magni yrði honum eytt í þessa fegurð á punktinum!!!!!

 

Fleiri fréttir