Magnaður dagur í Make Up Store!!

Fröken Fabjúlöss elskar Make Up Store!!! Þegar ferðinni er heitið þangað inn verður púlsinn aðeins hraðari og skapið mýkist!

Fröken Fabjúlöss er þessvegna að kafna úr öfund út í allar gellurnar í Reykjavík af því að á morgun er svokallaður klúbbdagur í Make Up Store og þessvegna 20% afsláttur af öllu! Afgreiðsludömurnar verða farðaðar með Coral línunni hjá þeim, förðunarlína sem hefur haldið Fröken Fabjúlöss vakandi margar næturnar, og nú hefur Fröken Fab einsett sér að eignast allt úr þeirri línu!

Stelpur, ef þið eruð á ferðinni í borginni á morgun þá er Make Up Store staðurinn til að vera á!

(mynd birt með góðfúslegu leyfi Make Up Store)

Fleiri fréttir