Malbikunarframkvæmdir á Króknum í vikunni

Sveitarfélagið Skagafjörður vekur athygli á því að nú í vikunni, dagana 8-12. júní, verður farið í malbikanir og viðgerðir á götum á Sauðárkróki. Búast má við tímabundnum truflunum á umferð víða í bænum meðan á framkvæmdum stendur.

Sérstakri aðvörun er beint til vegfarenda vegna hvassra kanta á þeim stöðum þar sem verið er að undirbúa malbik.

Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta kann að valda.

Fleiri fréttir