Málþing um íslenskar og norskar norðurslóðarannsóknir

Málþing um íslenskar og norskar norðurslóðarannsóknir verður haldið í Háskólanum á Akureyri 12. - 13. nóvember 2012 í hátíðarsal háskólans.

Samkvæmt fréttatilkynningu frá utanríkisráðuneytinu er málþingið, In Northern Mists: Understanding the Past, Predicting the Future – Icelandic and Norwegian Contributions to Arctic Researches, haldið í  tengslum við samning um aukið vísindasamstarf Íslands og Noregs á sviði norðurslóðafræða, sem utanríkisráðherrar Íslands og Noregs, Össur Skarphéðinsson og Jonas Gahr Støre undirrituðu á síðasta ári.

Að málþinginu standa utanríkisráðuneyti Íslands og Noregs, í samstarfi við Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, CICERO - Center for International Climate and Environmental Research, Háskólann á Akureyri og Norsk Institutt for Naturforskning.

Aðstoðarutanríkisráðherra Noregs, Torgeir Larsen, og Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins,  munu setja málþingið sem hefst kl. 14:00 mánudaginn 12. nóvember í hátíðarsal Háskólans á Akureyri. Í framhaldi munu íslenskir og norskir vísindamenn fjalla um rannsóknir sínar á norðurslóðum. Málþingið fer fram á ensku og er öllum opið.

Hér má skoða dagskrána.

 

Fleiri fréttir