Manstu frumsýnt í Miðgarði í dag

Leiklistarval Varmahlíðarskóla frumsýnir leikritið Manstu eftir Sölku Guðmundsdóttur í Miðgarði í dag, fimmtudaginn 11. apríl, kl. 17:00.

Miðaverð er kr. 1.000 kr. en þess má geta að ekki er kortaposi á staðnum. Ókeypis er fyrir grunnskólanemendur.

„Hvetjum við aðra nemendur, foreldra, vini og velunnara til að fjölmenna á þennan viðburð,“ segir á heimasíðu Varmahlíðarskóla.

Fleiri fréttir