María Björk tekur til starfa hjá SSNV
María Björk Ingvadóttir hefur tekið að sér verkefnastjórastöðu hjá SSNV og hefur því fengið tímabundið leyfi frá störfum sem frístundastjóri Sveitarfélagsins Skagafjarðar.
Samkvæmt heimasíðu sveitarfélagsins mun hún sinna verkefni hjá SSNV sem miðar að því hvernig hægt sé að ráðast í aðgerðir til þess að stemma stigu við brottflutningi yngra fólks af svæðinu og skapa aukin tækifæri í landshlutanum. Einnig kemur hún að vinnu umsókna til ESB vegna svokallaðra IPA styrkja fyrir SSNV.
„María Björk er lánuð til verkefnisins hjá SSNV í allt að eitt ár og sinnir ekki störfum fyrir Sveitarfélagið Skagafjörð á meðan. Í fjarveru Maríu Bjarkar sinna Nanna Andrea Jónsdóttir og Sigþrúður Harðardóttir málefnum Frístundar,“ segir á heimasíðu sveitarfélagsins.