Markalaust jafntefli gegn KA-mönnum í fjörugum leik
Tindastóll tók á móti KA í gærkvöldi í 1. deildinni og var reiknað með hörkuleik. KA menn hafa spilað vel að undanförnu og sátu fyrir leikinn í sjötta sæti en Tindastóll í níunda. Leikurinn var ágæt skemmtun og stuðningsmannahópur Tindastóls sá til þess að halda hita í áhorfendum en stuðningsmenn beggja liða voru fjölmennir í gær. Þrátt fyrir fjörugan leik tókst liðunum ekki að skora og lokatölur því 0-0.
Það var napurt í gærkvöldi, þoka yfir og hæg norðangola. Aðstæður ágætar til tuðruþeytings og það voru KA menn sem fóru betur af stað. Þeir nýttu kantana vel og voru snöggir að vinna boltann og sækja en vörn Tindastóls var vel með á nótunum þannig að gestirnir náðu ekki að skapa sér nein dauðafæri. Stólarnir komust síðan vel inn í leikinn um miðjan hálfleikinn, sköpuðu sér nokkur vænleg hálffæri og voru óheppnir að skora ekki þegar Max Touloute komst inn fyrir vörn KA skömmu fyrir hlé en Sandor Matos náði að verja í marki gestanna.
Í hálfleik gengu nokkur skot milli stuðningsmanna Manchester United og Arsenal eftir kaup þeirra fyrrnefndu á þeim sem ekki má nefna.
Síðari hálfleikur var keimlíkur þeim fyrri nema hvað nú byrjuðu heimamenn betur. Stólarnir spiluðu ágætan fótbolta og reyndu að nýta kantana sem best. Talsvert var leitað að Max Touloute á vinstri kantinum og hann var hættulegur í hvert sinn sem hann náði valdi á boltanum en Max er bæði eldsnöggur og leikinn með boltann. Herslumuninn vantaði hjá Stólunum að komast í dauðfæri en það voru KA menn sem voru næstir því að ná forystunni. Spil þeirra var ekki upp á marga fiska í síðari hálfleik en KA menn voru hættulegastir þegar þeir fengu aukaspyrnur inni á vallarhelmingi Tindastóls og sendu góðar sendingar inná vítateig. Sem betur fer vörðust Stólarnir grimmilega en uppúr miðjum síðari hálfleik björguðu þeir á línu eftir klafs í teignum. Þá átti Fannar Gíslason, sem nú spilar með KA, tvö ágæt skot en Sebastian Furness var öryggið uppmálað í marki Tindastóls og varði vel. Bæði lið reyndu hvað þau gátu til að stela sigrinum, leikmenn orðnir þreyttir og pirraðir, en þegar upp var staðið tókst ekki að koma boltanum í mörkin og jafntefli sanngjörn úrslit þó heimamenn hafi verið heldur sterkari aðilinn í leiknum.
Leikmenn skiluðu allir sínu í gærkvöldi en Atli Arnarson var þrælgóður, Max ansi líflegur, Ingvi Hrannar frábær í bakverðinum í fyrri hálfleik, Seb Furness flottur í markinu og ekki man ég til þess að Loftur Páll hafi stigið feilspor. Dominic Furness lék síðasta leik sinn með Stólunum en í leikmannahóp Tindastóls vantaði í gær þá Fannar Kolbeins og Björn Anton sem voru í leikbanni og Árna Einar.
Tindastóll á nú eftir að spila 7 leiki í deildinni. Allt verða þetta að líkindum úrslitaleikir, þrír heima og fjórir á útivelli. Stólarnir eru með 18 stig í níunda sæti deildarinnar rétt eins og fyrir leik en þrátt fyrir að vera þetta neðarlega í deildinni er liðið með hagstæða markatölu, fimm mörk í plús (27-22), en liðið á toppi deildarinnar, Víkingur Ólafsvík, er með sjö mörk í plús (23-16). Magnað.