Max Touloute valinn í landslið Haiti

Max Touloute sem spilaði með Tindastól síðasta sumar hefur verið valinn í landslið Haiti. Samkvæmt heimasíðu Tindastóls mun Haiti spila leik gegn Grenada eftir helgi og verður áhugavert hvort Max muni spila þann leik.

„Knattspyrnudeildin óskar Max til hamingju með þennan árangur,“ segir á heimasíðunni en þess má geta að Haiti er númer 57 á styrkleikalista FIFA og Ísland í því 96.

 

Fleiri fréttir