McConaughey nr.3

Fyrrum gleðigosinn og núverandi nýbakaði eiginmaðurinn og fjölskyldufaðirinn Matthew McConaughey situr ekki auðum höndum þarna niðri í Austin, Texas!

Síðustu 3 ár hafa farið í það hjá kappanum að hlaða niður börnum og verður þetta ár greinilega engin undantekning. Hann ákvað að nota þjóðhátíðar"tvítið" sitt í að tilkynna að hann ætti von á þriðja barninu sínu með eiginkonu sinni, hinni Brasílísku Camilu Alves (við erum ekkert öfundsjúkar út í hana hérna á skrifstofu Fröken Fabjúlöss!!). Fyrir eiga þau hjón 2 börn; Levi 3ja ára og Vidu 2ja ára.

Einnig er gaman frá því að segja að þann 10. Júní síðastliðinn lét þetta fallega par pússa sig saman með viðhöfn í garðinum heima hjá sér, þannig að hamingjan er bara blússandi á McConaughey heimilinu þessa dagana. Fröken Fabjúlöss óskar þeim bara til hamingju með allt saman!

Fleiri fréttir