Meiriháttar Makeup Artist!

Á fjölförnum netvegi veraldarvefsins er það ófáum kunnugt að Fröken Fabjúlöss er algjör förðunarfíkill og rúmlega það! Sama hvað það er sem Frökenin byrjar á því að skoða, einhvernveginn virðast allir netrúntar alltaf enda í einhverju förðunartengdu. 

Hingað til hefur sænska förðunargúruið Linda Hallberg verið í algjöru uppáhaldi og les Frökenin bloggið hennar af svipaðri áfergju og Páfinn les Biblíuna! En undanfarið höfum við hérna í förðunarhorni Fab verið að reka augun í farðanir sem eru svo fallegar og svo einstaklega vel skyggðar og blandaðar að okkar innri förðunarfræðingur malar eins og saddur og feitur lítill kettlingur! Eftir ákveðna eftirgrennslan komst Fröken Fabjúlöss svo á snoðir um nafnið á förðunarfræðingnum og eftir það fór google í gang!

Meredith Jessica heitir meistarastykkið sem gerir téðar farðanir og ekki tók það Frökenina langann tíma að snapa fram þær gleðifregnir að hún héldi út bloggi þar sem hægt er að skoða farðanirnar hennar í rólegheitunum, horfa á kennslumyndbönd (tutorials) fyrir sumar farðanirnar og lesa ummæli hennar um hin og þessi förðunarmerki.

Eftir að hafa gleymt sjálfri sér í örugglega 3 klukkutíma inni á blogginu við að lesa, læra og dást að tilkynnti Fröken Fabjúlöss okkur hérna í förðunarhorni Fabjúlössmans að þessu yrði hún hreinlega að deila með gyðjunum sínum guðdómlegu!

Í meðfylgjandi gallerí má sjá myndir af förðunum sem heilluðu Fröken Fab upp úr skónum, en allar myndirnar eru fengnar að láni annaðhvort af blogginu hennar; pigmentsandpalettes.com eða á feisbúkkinu hennar; facebook.com/pigmentsandpalettes!

Fleiri fréttir