Meiriháttar maskaraklikk!
Ein er sú athöfn sem í daglegri rútínu Fröken Fabjúlöss er dæmd til misjafnlega stórvægilegra mistaka: Maskaraásetning!
Einhverra hluta vegna nær Frökenin alltaf að klúðra hlutunum ponsulítið og í enda ásetningar má finna margvíslegar og misjafnlega smart maskaraklessur á hernaðarlega mikilvægum stöðum í kringum augun og hefur Fab það á tilfinningunni að hún sé nú ekki ein um þessi förðunarskæðu mistök! Í upphafi förðunarferils Fröken Fab rauk hún alltaf í blautar maskaraklessurnar með annaðhvort fingurgómum eða blautum eyrnapinna og náði oft að gera illt verra, en stundum varð hreinlega að byrja bara alveg upp á nýtt með förðunina, og þar sem maskarinn er yfirleitt það seinasta sem fer í andlitið þá var þetta hvimleitt í besta falli!
En þar sem Fröken Fabjúlöss sýgur í sig förðunar og lífsstílsráð eins og þurr svampur leið ekki á löngu áður en hún hnaut um besta ráðið til að redda málunum þegar þessar aðstæður koma upp: Þurr eyrnapinni!
Það sem best er að gera þegar óstöðug höndin hefur skilið eftir sig maskaraklikkelsi er að bíða í svona sirka mínútu á meðan maskarinn þornar á húðinni. Málið er að flestir maskarar innihalda gúmmí, og þegar það þornar er strax orðið auðveldara að ná klessunni af án nokkurra ummerkja með því að strjúka létt yfir hana með þurrum eyrnapinna (verður að vera þurr), vandamálið er úr sögunni og förðunin óhreyfð og gordjöss!
Þetta var fyrsta tip of the trade ársins 2013 í boði Fröken Fabjúlöss. Viljum við hérna í fegurðarhorni Fabjúlössmans nota tækifærið og óska ykkur öllum dásamlega fabjúlöss og ótrúlega gleðilegs nýs árs og þökkum í auðmýkt fyrir samfylgdina á liðnu ári!
Gerum árið 2013 ennþá meira Fabjúlöss!