Merkilegur fornleifafundur í Skagafirði

Komið hefur í ljós að skinn úr handriti sem fannst við uppgröft í fornum grafreit á Helgastöðum í Víðidal í Vesturfjöllum í Skagafirði á síðasta ári  reyndist heldur merkilegri en talið var í fyrstu. Samkvæmt Guðmundi Sigurðssyni fornleifafræðingi sem unnið hefur að því í vetur að hreinsa og rannsaka það kann hér að vera á ferðinni blaðsíða úr hinni glötuðu bók er greinir frá Gauki á Stöng í Þjórsárdal.

Á Wikipedia segir að Gaukur Trandilsson (líklega uppi á 10. öld) sé persóna í glataðri Íslendingasögu, sem kennd var við hann. Í Möðruvallabók er eyða á milli Njáls sögu og Egils sögu og þar eru tvær illæsilegar línur sem Jóni Helgasyni prófessor tókst loks að lesa og segir þar: „Láttu rita hér við Gauks sögu Trandilssonar, mér er sagt að Grímur eigi hana.“ Sagan var þó aldrei skrifuð í eyðuna og glataðist.

Á blaðsíðunni sem nú er í vörslu Fornminjadeildar Byggðasafns Skagfirðinga er kvæði er greinir frá uppgjöri Gauks og Steinólfs á Steinastöðum en sá fyrrnefndi er sagður hafa átt húsfreyjuna á Steinastöðum að ástkonu eins og frægur kviðlingur frá miðöldum gefur til kynna:

  • Önnur var öldin,
  • er Gaukur bjó í Stöng.
  • Þá var ei til Steinastaða
  • leiðin löng.

Guðmundur segir að margt sé sérstakt við handritið m.a. það að skinnið er greinilega  ekki kálfsskinn eins og algengast var að skrifað var á á þeim tíma en það á eftir að kanna nánar. Skinnið verður sent í forvörslu á Þjóðminjasafnið á morgun þar sem það mun verða í framtíðinni en fólk getur fengið að berja skinnið augum ásamt öðrum munum er fannst við þennan merka fund, í dag milli 14: og 17:00 í Minjahúsinu á Sauðárkróki. Þar verður boðið upp á kaffi og bakkelsi ásamt því að Árni Blöndal sem er mikill áhugamaður um sögu Gauks Trandilssonar mun lesa kvæðið fyrir gesti og ræða um sögu hans og örlög. Allir eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.

Hér fyrir neðan má sjá viðtal sem Stefán Friðrik Friðriksson átti við Guðmund í tilefni af þessum merka fundi.

Uppfært 2. apríl. Hér er um aprílgabb að ræða. Takk fyrir allir sem tóku þátt, líka þeir sem mættu í Minjahúsið.

http://www.youtube.com/watch?v=PdP14vY3EAI

Fleiri fréttir