Mette, Helgi Rafn og Árný Lilja fengu flest stigin til Íþróttamanns Skagafjarðar
Íþróttamaður UMSS 2012 var kjörin fyrir stuttu í hófi í Húsi frítímans á Sauðárkróki. Eins og áður er búið að greina frá hlaut Mette Camilla Moe Mannseth úr hestamannafélaginu Léttfeta þann eftirsótta titil. Var þetta niðurstaðan úr kjöri hjá formönnum aðildarfélaga og deilda innan UMSS.
Í þremur fyrstu sætunum voru:
- Mette Camilla Moe Mannseth 112 stig Hestamannafélagið Léttfeti
- Helgi Rafn Viggósson 94 stig Körfuknattleiksdeild UMFT
- Árný Lilja Árnadóttir 88 stig Golfklúbbur Sauðárkróks
Aðrir í kjöri voru:
- Bílaklúbbur Skagafjarðar: Baldur Haraldsson
- Frjálsíþróttadeild UMFT: Jóhann Björn Sigurbjörnsson
- Hestamannafélagið Stígandi: Þórarinn Eymundsson
- Hestamannafélagið Svaði: Hanna Maria Lindmark
- Knattspyrnudeild UMFT: Atli Arnarsson
Glæsilegur hópur ungra og efnilegra ungmenna í Skagafirði. Í hópinn vantar nokkra sem ekki gátu mætt á hófið og tekið við sínum viðurkenningum.
Fjölmargt ungt og efnilegt íþróttafólk í Skagafirði fékk viðurkenningar fyrir góðan árangur í sínum greinum og er héraðið ríkt af þeim efnivið.
Sigurjón Leifsson formaður UMSS
Jón Karlsson sagðist vera elsti maðurinn á svæðinu og færi með tvær viðurkenningar heim. Þarna var Jón að taka við viðurkenningum fyrir vinkonur sínar Árdísi Skaftadóttur og Guðlaugu Sigurjónsdóttur en þær voru á landsliðsæfingu í körfuboltanum.