Mikið fannfergi í Fljótum
-Það er allt á kafi hérna, það sést varla í girðingastaura. Það er einn og einn byrjaður að kíkja upp, segir Jóhannes H. Ríkharðsson bóndi á Brúnastöðum í Fljótum en bændur þar eru uggandi vegna þessa nú þegar stutt er í sauðburð. Ástandið er sérstaklega slæmt í Vestur-Fljótum þar sem fannfergi er mikið enda reglulega bætt á frá því í nóvember.
Fyrir helgi funduðu bændur með sveitarstjóra Svf. Skagafjarðar, formanni byggðarráðs, sviðstjóra tæknisviðs, formanni landbúnaðarnefndar, formanni Almannavarnanefndar Skagafjarðar, og ráðunaut frá Leiðbeiningamiðstöðinni sem mættu á svæðið og fóru yfir stöðuna athuguðu hvernig best væri að bregðast við ástandinu. -Ekki er ráð nema í tíma sé tekið og þá er einnig ágætt að vera í samráði við nágrannasveitarfélög sem eru í sama vanda og við eins og Svarfaðardalur og Þingeyjasveit og jafnvel önnur. Þetta þarf að gerast áður en menn detta í sauðburð því þá geta menn lítið sinnt öðru, segir Jóhannes.
-Sauðburður er að fara af stað hvað úr hverju og ef ekki fer að hlýna af krafti þá verður ansi þröngt á þingi, því að hér er ekki lófastór blettur af auðri jörð. Ef menn ætla að koma einhverju út þá þarf að fara að moka hér í kringum hús, segir Jóhannes en hann rekur ásamt Stefaníu Hjördísi Leifsdóttur konu sinni, áttahundruð kinda bú. Þau eiga von á tæplega fjórtán hundruð lömbum í vor svo það er að ýmsu að hyggja.
Heyfengur bænda var rýrari en venja er eftir mikið þurrkasumar og segir Jóhannes að varla hafi rignt frá því að hætti að snjóa í fyrravor og þangað til byrjaði að snjóa í fyrrahaust.
-Menn hafa reynt að spara hey eins og hægt er. Það sem bjargaði hér var að menn voru að slá sinutún og útengi og annað slíkt sem alla jafna er ekki slegið. Menn hafa passað að sóa ekki heyi að óþörfu og losað sig við óþarfaskepnur. Menn eru svosem ekkert óvanir því að gefa út maí en þurrkasumarið var slæmt í fyrra og heyfengur lélegri fyrir vikið.
Meðfylgjandi myndir sem ábúendur á Brúnastöðum tóku á dögunum segja meira en mörg orð.
.