Mikið um að vera á skíðunum
Skíðadeild Tindastóls sendi keppendur á Jónsmót 9-12 ára og meistaramót SKÍ 11-12 ára á Dalvík um síðustu helgi. Að sögn formanns skíðadeildar Tindastóls stóðu þau sig öll vel og unnu til fjölda verðlauna á mótunum.
Úrslit mótanna er hægt að nálgast HÉR
Sigurður Bjarni Rafnsson formaður deildarinnar er nóg um að vera framundan hjá skíðadeildinni en um næstu helgi verður haldið Sauðárkróks Bakarísmót í Tindastóli þar sem allir sem vilja geta verið með. Keppt verður í öllum aldursflokkum bæði í svigi og stórsvigi.