Mikið um að vera hjá Pardus á morgun
Mikið stendur til hjá bifvélaverkstæðinu Pardus ehf. á Hofsósi á morgun, 1. júní, en þar verður kynning á hágæða bón- og massalínunni frá 3M og verkfærum frá Sonic. Boðið verður upp á léttar veitingar og góðgæti fyrir börnin.
Menn frá Poulsen verða á staðnum til að kynna vörurnar en þar verður hægt að skoða og jafnvel prufa úrval af ýmsum vörum. Auk verkfæranna frá Sonic verða einnig verkfæraskápar til sýnis og sölu.
Kynningin verður frá kl. 15 - 20 og verður frítt í sund hjá Sundlaug Hofsóss fyrir gesti kynningarinnar.